Laugarhóll í Bjarnarfirði
Regular price
8.990 ISK
Regular price
Sale price
8.990 ISK
Unit price
/
per
Bjarnarfjörður býr að náttúrulegum jarðvarma sem Bjarnfirðingar hafa í gegnum aldirnar nýtt til hitunar, slökunar og þvotta. Hægt er að segja að hér sé heitavatns uppspretta á hverri jörð.
Á 12. öld var hin upprunalega Gvendarlaug, kennd við Guðmund hinn góða, hlaðin hér rétt ofan við núverandi laugarstæði. Laugin var talin hafa læknandi mátt og var í gegnum aldirnar nýtt til að vinna á hinum ýmsu kvillum.
Þrátt fyrir að í dag sé ekki leyfilegt að leggjast í Gvendarlaug, rennur sama vatn í heitum læk og hægt er að leggjast í annan náttúrulegan pott og nýja hlaðna laug neðar í sama læk.
Þessi sundlaug er prentuð á hágæða 240gr pappír - 30x40cm
Með því að velja innrammaða mynd kemur hún í fallegum og ljósum eikar ramma.